Saga félagsins
SPOEX er líknarfélag og var stofnað þann 15. nóvember 1972. SPOEX starfrækir í dag skrifstofu og göngudeild fyrir fólk með húðsjúkdóma í eigin húsnæði að Bolholti 6 í Reykjavik. Á göngudeildinni er boðið upp á UVB ljósameðferð undir eftitliti sérfræðings í húðsjúkdómum samkvæmt tilvísun frá húðsjúkdómalæknum.
Hjá félaginu starfar framkvæmdastjóri, Drífa Ósk Sumarliðadóttir og tveir sjúkraliðar með menntun á heilbrigðissviði, þær Stephanie Rósa Bosma og Fríða Móníka Ágústsdóttir Berndsen. Markmið félagsins er fyrst og fremst að gæta réttar sjúklinga og stuðla að betra og ríkara lífi þeirra með fræðslustarfsemi og kynningu á sjúkdómunum.
Stjórn félagsins skipa 7 manns, þar af eru 2 varamenn og er öll vinna stjórnar unnin í sjálfboðavinnu. Jafnframt hafa margir félagsmenn og velunnarar vítt og breitt um landið lagt félaginu lið í gegnum tíðina.
SPOEX er stofnaðili að alþjóðlegum samtökum IFPA (international federation of psoriatic disease associations) og norrænum samtökum psoriasissjúklinga NordPso, þar sem psoriasisfélög á Norðurlöndum eiga aðild að. Samstarfið við félagadeildir innan þessara stofnana er í mörgum tilfellum náið, einkum meðal félaga norrænu samtakanna.
Heimasíða IFPA ifpa-pso.com
Heimasíða aðildarfélaga NordPso:
Danmörk – psoriasis.dk
Finnland – psori.fi
Noregur – hudportalen.no
Svíþjóð – psoriasisforbundet.se