Hafa samband
Þú getur haft samband við okkur með því að senda okkur tölvupóst eða hringja í okkur á opnunartíma.
Staðsetning
Félag Spoex rekur skrifstofu og göngudeild í Bolholti 6, 105 Reykjavík. Á skrifstofunni fer fram mikið og þarft starf; halda þarf utan um málefni er varða félagsmenn og sinna bókhaldi og erlendu samstarfi, enda er Spoex aðili að alþjóðlegu psoriasis samtökunum IFPA og Nordpso sem eru samtök norrænna psoriasisfélaga. Fræðslufundir og fyrirlestrar eru haldnir á vegum félagsins og þar ber helst að nefna metnaðarfulla dagskrá á alþjóðadegi psoriasis sem er haldinn 29. október ár hvert. Starfsmaður félagsins er jafnframt tengiliður við fréttaveitur, ráðuneyti og önnur félagasamtök eins og ÖBÍ sem SPOEX er aðili að.