19. apríl 2026

Fundargerð aðalfundar SPOEX 2026

  1. Formaður SPOEX, Ingvar Ágúst Ingvarsson, setur fundinn kl 17:06. Hann býður alla velkomna. Fundurinn er boðaður með löglegum hætti í Morgunblaðinu fimmtudaginn 9. apríl.
  2. Kosning fundarstjóra og fundarritara. Ingvar Ágúst Ingvarsson kosinn fundarstjóri og Drífa Ósk Sumarliðadóttir kosin fundarritari.
  3. Fundargerð aðalfundar 2025 lögð fram og hún samþykkt.
  4. Skýrsla stjórnar lesin. Ingvar Ágúst Ingvarsson fer yfir þau verkefni sem unnin hafa verið á starfsárinu 2025.
  5. Ársreikningur félagsins lagður fram og skýrður. Elín fer yfir ársreikning félagsins. Félagið var rekið með tapi á starfsárinu 2025.
  6. Umræður voru um skýrsluna um fjárhagsstöðu á milli ára.
  7. Ársreikningur félagsins borinn upp til samþykktar eða synjunar og var hann samþykktur.
  8. Kosning formanns. Í framboði er Elín Helga Hauksdóttir. Ingvar Ágúst vill fá að stíga til hliðar þar sem það er nóg að gera í alþjóðlegu starfi hjá IFPA. Enginn annar er í framboði og var kosning Elínar Helgu því samþykkt. Elín Helga Hauksdóttir er því nýr formaður SPOEX.
  9. Kosning tveggja manna í stjórn og einn aðalmann í 1 ár þar sem Elín Helga var kosin til 2 ára á síðasta aðalfundi og fór í formanninn. Arnþór Jón Egilsson og Drífa Ósk Sumarliðadóttir hafa boðið sig fram til tveggja ára og Ingvar Ágúst til eins árs. Var það samþykkt. Arnþór Jón og Drífa Ósk eru því kosin til næstu tveggja ára og Ingvar Ágúst fram á næsta aðalfund.
  10. Kosning varamanns í stjórn. Sigrún Dóra Hemmert bauð sig ein fram og var það samþykkt.
  11. Kosning tveggja endurskoðenda. Hinrik Þór Harðarson og Albert Ingason gefa kost á sér. Var það samþykkt.
  12. Félagsgjöld. Lagt er til að hækka almennt gjald í 4.500.-, fyrir aldraða og öryrkja í 2.250.- og fjölskyldugjald í 6.750.- Lagt fram til samþykktar eða synjunar. Samþykkt var að hækka félagsgjaldið.
  13. Farið var yfir lagabreytingar.
    3. gr.
    □ Félagið er líknarfélag, sem rekið er án hagnaðarsjónarmiða. Félagið hagi fjáröflun sinni í fullu samræmi við 36. gr. reglugerðar nr. 245, dags. 31. des. 1963 um tekju- og eignarskatt. Þessi reglugerð er fallin úr gildi og lög nr. 90/2003 um tekjuskatt er tekin við.
    Feitletrað var bætt við 3.gr. þar sem ekki má breyta greininni.
    5. gr.
    □ Félagar geta verið einstaklingar með psoriasis- eða exem sjúkdóm, aðstandendur þeirra og aðrir sem áhuga hafa á málefnum félagsins. Atkvæðisrétt á aðalfundi hafa einungis skráðir og skuldlausir félagsmenn.
    5. gr. félagsins var breytt í heild sinni.
    7. gr.
    □ Stjórnin stýrir málefnum félagsins og annast allar framkvæmdir hennar, nema öðruvísi sé ákveðið. Stjórnin hefur heimild til að kalla sérhvern félaga sér til aðstoðar um starfsemi félagsins. Stjórn ber ábyrgð gerða sinna fyrir aðalfundi. Aðalfundur telst lögmætur, ef löglega er til hans boðað.
    □ Stjórn félagsins getur ákveðið að stofna félagsdeildir út um land. Skulu þær velja sér a.m.k. þriggja manna stjórn, þar af einn til að vera í forsvari fyrir deildina, og halda stjórnarfundi eftir því sem þurfa þykir. Deildir skulu vera félaginu til aðstoðar við að sinna málefnum sjúklinga, hver á sínu starfssvæði. Þær skulu vinna að því að aðstaða sé til ljósabaða á svæðinu og koma fram fyrir hönd félagsins í þeim málum, og sinna öðrum málum sem psoriasis- og exemsjúklinga snertir. Deildir skulu senda árlega skýrslu um starfsemi sína til SPOEX til birtingar í fréttabréfi eða vefmiðlum.
    Feitletruðu var bætt við síðustu setningu í 7. gr. til að færa til nútímans.
    8. gr.
    Aðalfundur skal auglýstur með minnst einnar viku fyrirvara með viðeigandi hætti, svo sem með rafrænum tilkynningum til félagsmanna eða opinberri birtingu á vefmiðlum.
    □ Dagskrá aðalfundar milli formannskosninga skal vera að öllu leyti eins, nema hvað 8. liður (kosning formanns) fellur að sjálfsögðu niður.
    Feitletruðu var breytt í setningu um auglýsingu fyrir aðalfund og feitletraður 8. liður leiðréttur þar sem ranglega stóð 7. liður.
    Lagabreytingar voru samþykktar. Voru lögin líka borin upp til samþykktar í heild sinni og voru þau samþykkt í heild.
  14. Önnur mál. Húsnæðismál í Bolholti 6 voru rædd. Það er komið að meiri framkvæmdum og hótelrekstur og tungumálaskóli á hæðunum fyrir ofan. Einnig erfitt að fá bílastæði. Rætt var um að finna mögulega hentugra húsnæði fyrir SPOEX. Stjórnin mun skoða hvað hægt er að gera.
  15. Fundi slitið.